Veiðin.is

Fréttir

Allar helstu veiðifréttir

Enter til að leita · Esc til að hreinsa

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórs­á boðin út

20.07.2026 · Vísir

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes hefur verið boðin út ásamt nýbyggingu Búðafossvegar. Brúarsmíðin og vegarlagningin boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra.

Lesa meira →

Krefjast lög­banns við lax­veiðum Iðufólks í Stóru-Laxá

17.07.2026 · Vísir

Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.

Lesa meira →

Ólafur hjá Morgun­blaðinu kærður til siða­nefndar BÍ

15.07.2026 · Vísir

Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar.

Lesa meira →

„Elliða­árnar eru bakka­fullar af göngu­laxi“

13.07.2026 · Vísir
Lesa meira →

Kærir Iðufólk fyrir líkams­árásir, þjófnað og hótanir

09.07.2026 · Vísir
Lesa meira →

Iðumálið frá upp­hafi frá sjónar­hóli Stóru-Laxárdeildar

09.07.2026 · Vísir
Lesa meira →

Dræm lax­veiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“

30.06.2026 · Vísir
Lesa meira →

Bjóða ferða­mönnum að gista í súrheysturni

25.06.2026 · Vísir
Lesa meira →

Veg­legt veiði­hús rís fyrir silungasvæðið

11.06.2026 · Vísir
Lesa meira →

Eftir­lit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í ó­vissu um kæru­mál

19.05.2026 · Vísir

Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna.

Lesa meira →

Veiði­menn klæði sig í föður­landið á morgun

31.03.2026 · Vísir

Stangveiðitímabilið hefst á morgun, 1. apríl. Ritstjóri Sportveiðisblaðsins býst við að sumsstaðar þurfi veiðimenn að brjóta ís af ánum.

Lesa meira →

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

26.03.2026 · Vísir

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Lesa meira →

Deila um veg­slóða fyrir Hæsta­rétt

17.02.2026 · Vísir

Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá.

Lesa meira →

Villtur lax má ekki vera fórnar­kostnaður

24.01.2026 · Vísir

Umræða um laxeldi á Íslandi er oft sett fram sem togstreita milli atvinnuuppbyggingar og náttúruverndar. Sú mynd er villandi.

Lesa meira →

Skólp og klór frá Hvera­gerði gerir Ölfusingum lífið leitt

06.12.2025 · Vísir

Íbúar í Ölfusi eru langþreyttir á mengun í Varmá sem kemur frá nágrönnum þeirra í Hveragerði. Skólplykt leggur yfir íbúðahverfi í Ölfusi og fiskar hafa drepist í ánni vegna klórs frá sundlauginni í Laugaskarði. Bæjaryfirvöld tilkynntu ekki um klórslys sem varð í vor fyrr en daginn eftir að það átti sér stað.

Lesa meira →

Tólf eldislaxar fundust í sex ám

09.10.2025 · Vísir

Erfðagreining á 34 löxum hefur leitt í ljós að tólf þeirra reyndust eldislaxar. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará.

Lesa meira →

Sjö eldis­laxar fundist í fjórum ám

29.08.2025 · Vísir

Erfðagreining á 22 löxum úr fjórum ám sem bárust Hafrannsóknastofnun leiddi í ljós að sjö þeirra væru eldislaxar. Sex þeirra eru taldir koma úr fiskeldi í Dýrafirði en uppruni eins er tilrannsóknar.

Lesa meira →

Staðan ekki al­var­leg í Hauka­dals­á

25.08.2025 · Vísir

Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir fjölda eldislaxa í Haukadalsá undir þeim mörkum sem teljast alvarleg. Fjögur prósent veiddra laxa í tiltekinni á þurfa að vera eldislaxar til að hættuástand skapist vegna erfðablöndunar.

Lesa meira →

Meiri­hluti hefur á­hyggjur af laxa­stofninum nema í fjörðunum

25.08.2025 · Vísir

Rúmur helmingur svarenda í skoðanakönnun segist hafa miklar áhyggjur á því að íslenski laxastofninn sé í hættu. Afgerandi munur er hins vegar á afstöðu eftir landhlutum. Íbúar á Vestfjörðum og Austurlandi þar sjóeldi á laxi er mest stundað hafa áberandi minnstar áhyggjur af stofninum.

Lesa meira →

Jóhann tekur við af Gunnari hjá Lands­sam­bandi veiði­fé­laga

25.08.2025 · Vísir

Stjórn Landssambands veiðifélaga hefur ráðið Jóhann Helga Stefánsson í starf framkvæmdastjóra. Hann tekur við starfinu af Gunnari Erni Petersen 1. september næstkomandi.

Lesa meira →

Andaðu ró­lega elskan...

21.08.2025 · Vísir

Framkvæmdastjóri SFS, skrifaði nýlega grein þar sem hún leggur til að við sýnum stillingu og „öndum rólega“ þegar eldislax finnst í íslenskum ám.

Lesa meira →

Öndum ró­lega – á meðan húsið brennur

20.08.2025 · Vísir

Nokkuð erfitt var að lesa grein framkvæmdastjóra SFS hér á Vísi í gær sem sett var fram af talsverðu yfirlæti. Þar var bændum og veiðiréttarhöfum sagt að „anda rólega“. Anda rólega á meðan framandi eldislaxar hellast upp í laxveiðiár landsins og ógna villtum laxastofnum og lífsviðurværi fjölda fólks.

Lesa meira →

Norsku kafararnir mættir í Hauka­dals­á

19.08.2025 · Vísir

Norskir kafarar eru komnir til landsins til að sinna eftirliti í Haukadalsá fyrir Fiskistofu. Laxar með skýr einkenni eldisfiska hafa veiðst í ánni á undanförnum dögum.

Lesa meira →

Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“

17.08.2025 · Vísir

Umhverfisráðherra segir stjórnvöld hafa dregið lappirnar í málum sjókvíaeldis og segir að tekið verði fastar utan um málaflokkinn í frumvarpi sem lagt verði fram á næsta þingi. Meginreglan sé sú að „skussinn borgi brúsann.“

Lesa meira →

Loka Mið­fjarðar­á með grjóti og segja stjórn­völd hafa dregið lappirnar

17.08.2025 · Vísir

Miðfjarðará hefur verið lokað með öflugum grjótgarði til að koma í veg fyrir að sjókvíaeldislax komist í ána. Formaður veiðifélags árinnar segir stjórnvöld hafa dregið lappirnar í málaflokki sjókvíaeldis og vill að stigið verði fastar til jarðar í nýju frumvarpi.

Lesa meira →

„Staðan er al­var­leg en við vitum ekki hversu al­var­leg hún er“

16.08.2025 · Vísir

Fiskistofa greindi frá því í gær að hluti þeirra laxa úr Haukadalsá sem áður voru taldir eldislaxar væru svokallaðir hnúðlaxar. Fiskifræðingur segist 100% viss um að lax sem fundist hefur í ánni sé sjókvíaeldislax og segir stöðuna áfram óljósa og alvarlega.

Lesa meira →

Segir eldislaxinn sannar­lega eldislax: „Það eru þeirra mis­tök“

15.08.2025 · Vísir

„Sjókvíeldislaxinn sem veiddist um nóttina 14. ágúst var sjókvíeldislax, en ætlaður eldislax í talningu Fiskistofu, allavega að hluta til, reyndist vera hnúðlax. Það eru þeirra mistök. Við getum bara sagt það eins og er.“

Lesa meira →

„Maður skilur ekki al­veg hvernig á þessu stendur“

15.08.2025 · Vísir

Formaður veiðifélags á Norðurlandi óttast að eldislaxar, sem fundust í Dalabyggð í gær, berist í fleiri ár. Hann segir slysasleppinguna umhverfisslys og stjórnvöld verði að bregðast við.

Lesa meira →

Fleiri eldislaxar í Hauka­dals­á: „Þetta lítur alls ekki vel út“

14.08.2025 · Vísir

Framkvæmdastjóri Stangveiðifélags Reykjavíkur segir þrjá eldislaxa hafa veiðst í Haukadalsá í Dalabyggð á Vesturlandi í nótt og vitað sé um fleiri. Staðan sé verri en menn þorðu að vona en næstu skref sé að senda lífssýni til rannsóknar, greina hvaðan fiskarnir koma og hreinsa ána.

Lesa meira →

Vara við eldislax í Hauka­dals­á

13.08.2025 · Vísir

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn varar við strokulax í Haukadalsá og segir að fjöldi stórra laxa allt að 90 sentímetrar að stærð hafi fundist neðarlega í ánni.

Lesa meira →
Engar fleiri færslur.
30 af 30 færslum