Veiðin.is

Fréttir

Allar helstu veiðifréttir

Enter til að leita · Esc til að hreinsa

Superfish: Salmon – þér er boðið í bíó

28.10.2026 · SVFR

Superfish: Salmon er mögnuð heimildarmynd fylgir ótrúlegu ferðalagi villta laxins um ár og höf og sýnir mikilvægi hans fyrir heilbrigði vistkerfa og samfélaga. Emmy- og BAFTA-verðlaunahafinn og sjávarlíffræðingurinn Rick Rosenthal leiðir áhorfendur í gegnum sögu sem sameinar stórkostlega kvikmyndatöku og vísindalega innsýn. Myndin varpar ljósi á þær áskoranir sem laxinn stendur frammi fyrir og útskýrir hvers …

Lesa meira →

Gljúfurá bætist við endurbókunarsvæði félagsins

23.10.2026 · SVFR

Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur hefur ákveðið að bæta Gljúfurá í Borgarfirði í hóp þeirra ársvæða sem falla undir endurbókun. Þeir sem veiddu í Gljúfurá í sumar fá því tækifæri til að bóka sömu daga að nýju fyrir tímabilið 2027. Tölvupóstur verður sendur á viðkomandi veiðimenn með frekari upplýsingum. Hér að neðan er hægt að staðfesta að …

Lesa meira →

Gleðin við völd á Haustfagnaði SVFR

20.10.2026 · SVFR

Haustfagnaður SVFR fór fram í Þróttar heimilinu þar sem félagsmenn og gestir komu saman til að fagna góðu veiðisumri og eiga skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap. Nefndum SVFR var boðið í hamborgaraveislu klukkan 18 áður en almenn dagskrá hófst klukkan 20. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, bauð gesti hjartanlega velkomna áður en Jógvan Hansen tók við …

Lesa meira →

Mótmælum sjókvíaeldi í Seyðisfirði!

08.10.2026 · SVFR

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsfólk sitt til að sýna Seyðfirðingum stuðning og mæta á mótmælin gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sunnudaginn 11. október kl. 15:00, á Austurvelli. Nýverið voru gefin út leyfi til eldis á frjóum laxi í sjókvíum í Seyðisfirði, þrátt fyrir að um 75% Seyðfirðinga séu andvíg eldinu. Sjókvíaeldi hvar sem það er, varðar allt …

Lesa meira →

Haustfagnaður SVFR

06.10.2026 · SVFR

Þá er haustið er komið og veiðisumarið að baki. Því er kominn tími til að hittast, rifja upp góðar veiðisögur og skála fyrir frábæru veiðisumri. Fögnuðurinn fer fram í veislusal Þróttar í Laugardal fimmtudaginn 15. október. Húsið opnar kl. 20:00 og við hvetjum félagsmenn, og veiðiáhugafólk, til að mæta og eiga skemmtilega kvöldstund saman. Jógvan …

Lesa meira →

Opið fyrir endurbókanir 2027

02.10.2026 · SVFR

Opnað hefur verið fyrir endurbókanir fyrir veiðitímabilið 2027 þar sem í boði er að tryggja sömu veiðidaga á völdum ársvæðum SVFR að ári. Boðið er upp á endurbókun á eftirtöldum ársvæðum: Flekkudalsá Haukadalsá 30.6-1.9 Langá Langá – efsta svæðið Laxá í Aðaldal – Miðsvæðið Laxá í Mývatnssveit Laxá í Laxárdal Miðá í Dölum Sandá í …

Lesa meira →

Sandá í Þjórsárdal lifnar við!

18.09.2026 · SVFR

Nils Folmer Jorgensen, sá frábæri veiðimaður, skrapp aðeins í Sandá í Þjórsárdal í gær. Óhætt er að segja að skreppitúrinn hafi verið vel þess virði. Nils landaði 6 löxum, þar af einum sem mældist 101 cm! Nils sagði okkur að mikið af fiski væri við Ósinn sem biði þess að komast upp í ána, en …

Lesa meira →

Draumabyrjun á fluguveiðiferlinum í Miðá

02.09.2026 · SVFR

Það þarf ekki alltaf risa lax eða metveiði til að eiga vel heppnaða veiðiferð. Skemmtilegar samverustundir í fallegu umhverfi, þar sem veiðistöngin er aldrei langt undan, skapa minningar sem fylgja okkur lengi. Um miðjan ágúst héldu bræðurnir Ástþór Ernir og Bjarni Rúnar í Miðána í góðra vina hópi. Fyrir Bjarna var þetta fyrsta fluguveiðiferðin og …

Lesa meira →

Unga kynslóðin tók yfir Langá

31.08.2026 · SVFR

Fyrstu ungmennadagar Stangaveiðifélags Reykjavíkur í Langá á Mýrum fóru fram dagana 18.–20. ágúst og óhætt er að segja að þeir hafi heppnast einstaklega vel. Viðburðurinn er kærkomin viðbót við starf félagsins og er ætlaður ungmennum á aldrinum 16–20 ára. Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar en hátt í sjötíu umsóknir bárust. Alls fengu 48 ungmenni …

Lesa meira →

Gljúfurá komin yfir lokatölur síðasta árs og laust holl 2.–4. september

28.08.2026 · SVFR

Góð veiði hefur verið í Gljúfurá undanfarið og þegar þetta er ritað hafa 128 laxar komið á land. Þar með er veiðin komin yfir lokatölur síðasta árs, þegar 117 laxar veiddust. Enn er tæpur mánuður eftir af tímabilinu, sem lýkur 26. september, og það verður spennandi að fylgast með lokasprettinum! Við eigum eitt laust holl …

Lesa meira →

Nýgenginn lax enn að veiðast í Sandá – laus holl í september

26.08.2026 · SVFR

Það er búið að vera mikið líf í Sandá í Þistilfirði í ágúst og veiðimenn sem nýlega voru við veiðar urðu varir við mikið af laxi um alla á, strax á fyrstu vakt. Tóku þeir sérstaklega eftir því hve mikið af nýlegum laxi var að sjá og greinlegt að lax er enn að ganga inn …

Lesa meira →

Spennandi veiðileyfi á lausu í ágúst

21.08.2026 · SVFR

Seinni hluti ágúst mánaðar er að margra mati einn skemmtilegasti tími sumarsins við árbakkann. Fiskur er víða kominn vel upp í árnar, kvöldin farin að styttast og oft skapast frábærar aðstæður til veiða þegar líður á sumarið. Því er um að gera að nýta síðustu daga sumarsins og skella sér í veiði , hvort sem …

Lesa meira →

Takk fyrir komuna á Ungmennadaga Elliðaánna 2026

19.08.2026 · SVFR

Elliðaárnar skörtuðu sínu fegursta í blíðskaparveðri þegar seinni tveir ungmennadagar sumarsins voru haldnir. Fyrri tveir dagarnir fóru fram í byrjun júlí og í ár var í fyrsta sinn boðið upp á fjóra ungmennadaga. Við erum afar stolt af því að hafa tekið á móti 130 ungum veiðimönnum og gaman var að sjá hversu margir voru …

Lesa meira →

Frábær holl laus á næstu dögum!

14.08.2026 · SVFR

Eitt holl laust í ágúst, 23-26.8 Ágætis veiði í Þistilfirðinum núna, frábær laxveiðiá og þetta er nú heldur betur tækifæri til að kynnast henni. Hafið samband við skrifstofu SVFR ef áhugi er á þessu holli. 3 holl eru laus í ágúst,slatti af laxi er genginn í ánna og töluvert er um væna sjóbleikju. Þessi …

Lesa meira →

Spennandi veiðileyfi í ágúst og september!

11.08.2026 · SVFR

Nú fer að síga á seinni hluta veiðitímabilsins, sem virðist ætla að verða eitt hið besta í mörg ár, að minnsta kosti á Vestur- og Suðurlandi. Nú virðist sá silfraði vera að mæta í Þjórsárdalinn, fyrsti laxinn veiddist á sunnudaginn og á laugardaginn veiddist 60 cm sjóbirtingur. Vatnsstaðan er hindrunin hér, en það er einhver …

Lesa meira →

Veiðimolar vikunnar

07.08.2026 · SVFR

Nú fer að síga á seinni hluta veiðitímabilsins, sem virðist ætla að verða eitt hið besta í mörg ár, að minnsta kosti á Vestur- og Suðurlandi. Veiðin hefur verið vaxandi í Sandá. Fiskur kom seint fyrir norðan, sem má ef til vill rekja til mikils vatns og snjólosunar fyrri hluta sumars. Góðar smálaxagöngur voru …

Lesa meira →

Sandá í Þistilfirði

28.07.2026 · SVFR

Sandá í Þistilfirði er að kveikja á sér eftir frekar rólega byrjun. Skilyrði til veiða á NA landi hafa verið erfið í sumar vegna sólbráðar og mikils vatns,fiskur að ganga frekar seint. Skilyrðin eru aftur á móti mjög góð núna og má geta þess að hollið sem er að ljúka veiðum núna veiddi 18 laxa …

Lesa meira →

Langá komin yfir 100 laxa. Sterkar göngur og góð veiði um alla á

11.07.2026 · SVFR

Mikið líf hefur verið í Langá síðustu daga þar sem laxagöngur hafa tekið verulegan kipp og aðstæður í ánni eru með besta móti. Heildaraflinn er nú kominn yfir 100 laxa og síðustu daga hafa veiðst á bilinu 10–20 laxar á dag. Þann 8. júlí veiddust 20 laxar, sem er besti veiðidagur sumarsins hingað til. Laxagöngur …

Lesa meira →

Laxinn byrjaður að streyma inn – spennandi bitar í vefsölu

02.07.2026 · SVFR

Góðan daginn. Nú eru laxarnir farnir að streyma inn í árnar og spennan í veiðimönnum farin að stigmagnast. Nú er því kjörið tækifæri að stökkva á lausa bita í vefsölu SVFR við eigum laus veiðileyfi í Langá, Haukadalsá, Sandá í Þistilfirði, Vatnsdalsá, Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal svo eitthvað sé nefnt. Enn er hægt er …

Lesa meira →

Sumarblað Veiðimannsins er komið út!

01.07.2026 · SVFR

Veiðimaðurinn, málgagn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er komið út og ætti að hafa borist félagsmönnum. Blaðið er fjölbreytt að vanda. Greint er frá skýrslu stjórnar SVFR þar sem farið er skilmerkilega yfir veiðisvæði á vegum félagsins, sem og fjárhagsstöðuna. Fimmta árið í röð er eiginfjárstaða félagsins að styrkjast. Rætt er við Ármann Kristjánsson, umsjónarmann miðsvæðisins í Laxá …

Lesa meira →

Við kynnum með stolti ungmennadaga í Langá 18.-19. ágúst

25.06.2026 · SVFR

Dreymir þig um að veiða í Langá á Mýrum? Dagana 18.–19. ágúst gefst félagsmönnum fæddum á árunum 2006–2010 einstakt tækifæri til að kynnast einni af fegurstu og þekktustu laxveiðiám landsins og njóta útiveru í góðum félagsskap. Ferðin er gjaldfráls. Boðið verður upp á gistingu og rútuferðir fyrir þá sem þess óska og allar máltíðir eru innifaldar. …

Lesa meira →

Við kynnum með stolti ungmennadaga í Langá 18.-19. ágúst

25.06.2026 · SVFR

Dreymir þig um að veiða í Langá á Mýrum? Dagana 18.–19. ágúst gefst félagsmönnum fæddum á árunum 2006–2010 einstakt tækifæri til að kynnast einni af fegurstu og þekktustu laxveiðiám landsins og njóta útiveru í góðum félagsskap. Ferðin er gjaldfráls. Boðið verður upp á gistingu og rútuferðir fyrir þá sem þess óska og allar máltíðir eru innifaldar. …

Lesa meira →

Opnun Elliðaánna 2026 – 78 cm lax á land

23.06.2026 · SVFR

Laxveiðitímabilið í Elliðaánum var formlega opnað við hátíðlega athöfn laugardaginn 20. júní í einstakri veðurblíðu. Fjölmenni var samankomið við veiðihúsið í Elliðaárdal þar sem stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, fulltrúar Reykjavíkurborgar, Reykvíkingur ársins 2026, fjölmiðlar, félagsmenn SVFR og aðrir gestir komu saman til að fagna upphafi nýs veiðisumars. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, setti athöfnina og rifjaði upp …

Lesa meira →

Opnun Elliðaánna fer fram á morgun

19.06.2026 · SVFR

Laxveiðitímabilið í Elliðaánum hefst formlega á morgun, laugardaginn 20. júní, klukkan 08:00 við hátíðlega athöfn við veiðihúsið í Elliðaárdal. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, mun lýsa formlega yfir upphafi veiðitímabilsins og bjóða Hildi Björnsdóttur borgarstjóra Reykjavíkur, Björgu Magnúsdóttur forseta borgarstjórnar, Einari Þorsteinssyni formanni borgarráðs og Reykvíkingi ársins að hefja veiðar. Verður þetta í 87. sinn sem …

Lesa meira →

Grunnnámskeið í andstreymisveiði

16.06.2026 · SVFR

Námskeiðið samanstendur af kvöldfyrirlestri, þar sem farið verður yfir undirstöðuatriðin í andstreymisveiði ásamt yfirferð á búnaði og uppsetningu hans, og veiðikennslu í Brúará í landi Sels. Markmið námskeiðsins er að nemendur fái góðan skilning í lestri á vatni, hvar fiskur heldur sig og hvernig á að bera sig að til að koma agninu rétt fyrir …

Lesa meira →

Reykjadalsá í sölu hjá SVFR

11.06.2026 · SVFR

SVFR og Veiðifélag Reykjadalsár í Borgarfirði hafa náð samkomulagi um að sala veiðileyfa í þessa perlu verði á vegum félagsins. Markmið samstarfsins er að efla ársvæðið til framtíðar. Meðal fyrirhugaðra aðgerða eru að draga úr veiðiálagi með minni kvóta og taka upp eingöngu fluguveiði í ánni frá og með veiðitímabilinu 2027. Jafnframt verður lögð aukin …

Lesa meira →

Laxinn mættur í Langá!

05.06.2026 · SVFR

Fyrsti laxinn í Langá renndi sér í gegnum teljarann kl 18:01 í gær, þessi glæsilega 71 cm hrygna sem sést á meðfylgjandi mynd. Samkvæmt teljara eru 2 komnir í gegn en einungis náðist mynd af öðrum þeirra. Þetta telst ansi góður fyrirboði fyrir veiðina, yfirleitt mætir laxinn aðeins seinna í Langá heldur en í Norðurá …

Lesa meira →

Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal – mín fyrstu kynni

04.06.2026 · SVFR

Nýverið fór undirritaður ásamt góðum félögum á Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal og var upplifunin sú að hér væri um sannkallaðan gimstein að ræða. Fyrir þá sem kunna að veiða Mývatnssveit og Laxárdal er þetta svæði líklegt til að falla einstaklega vel í geð, fjölbreytt, fallegt og fullt af spennandi veiðistöðum Það sem stendur hvað …

Lesa meira →

Skráning hafin á Ungmennadaga í Elliðaánum 2026!

01.06.2026 · SVFR

Skráning er hafin á ungmennadaga SVFR í Elliðaánnum 2026 sem fara að þessu sinni fram 5.– 6. júlí og 9.–10. ágúst. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og undanfarin og er veiðitíma er skipt í tvær vaktir: 08:00–13:00 og 15:00–20:00. Sextán pláss eru í boði á hverri vakt. Hægt er að sækja um dag til vara, …

Lesa meira →

Kráká til SVFR

29.05.2026 · SVFR

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur undirritað samning við Veiðifélag Laxár og Krákár um að Kráká verði framvegis rekin undir merkjum félagsins. Með samningnum bætist spennandi og sögufrægt ársvæði við fjölbreytt úrval veiðisvæða SVFR. Kráká er fjögurra stanga á sem rennur um fallegt landslag í Mývatnssveit áður en hún sameinast Laxá í Mývatnssveit. Áin hefur löngum verið þekkt …

Lesa meira →

Ungt veiðifólk í essinu sínu við Rauðavatn – aukanámskeið 23. maí!

19.05.2026 · SVFR

Eftir nokkurt hlé var ákveðið að endurvekja flugukastnámskeið fyrir yngstu meðlimi félagsins í samstarfi við Veiðiskólann. Skemmst er frá því að segja að viðtökurnar létu ekki á sér standa en helgina 9.–10. maí mættu hátt í fimmtíu börn og ungmenni á aldrinum 10–19 ára við Rauðavatn til að læra grunnatriði flugukasts. Boðið var upp á …

Lesa meira →

Gljúfurá áfram hjá SVFR næstu árin

12.05.2026 · SVFR

SVFR og Veiðifélag Gljúfurár skrifuðu nýlega undir nýjan samning sem tryggir félagsmönnum áframhaldandi aðgang að Gljúfurá næstu árin. Með undirritun samningsins heldur áfram áratugalangt samstarf sem hefur skilað félagsmönnum SVFR fjölmörgum eftirminnilegum veiðidögum. Gljúfurá hefur verið innan vébanda SVFR frá árinu 1982 og skipar sér þar með sess meðal þeirra áa sem margir félagsmenn þekkja …

Lesa meira →

Fjölmennt á vorveiðidögum ungmennastarfsins

09.05.2026 · SVFR

Það var gleði og tilhlökkun í loftinu þegar vorveiðidagar ungmennastarfsins fóru fram í Korpu og Leirvogsá 25. apríl og 2. og 3. maí. Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar, yfir 50 skráningar bárust á innan við sólarhring og hátt í 40 börn fengu úthlutað tveggja klukkustunda vakt hvert um sig. Samkvæmt reglum var veitt á …

Lesa meira →

Vorveiðin í Elliðaánum fer vel af stað

06.05.2026 · SVFR

Vorveiði hófst í Elliðaánum þann 1. maí og hefur farið vel af stað. Alls hafa 54 urriðar veiðst til þessa. Elliðaárnar eru einstök náttúruperla í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Þar mætast borg og villt náttúra á einstakan hátt, þar sem tærar ár liðast um gróið umhverfi og skapa kjöraðstæður fyrir fisk og veiðimenn. Svæðið er aðgengilegt, fallegt …

Lesa meira →

Góð stemning á heiðurskaffi heldri félaga

01.05.2026 · SVFR

Um miðjan apríl var heldri meðlimum félagsins boðið í sérstakt heiðurskaffi á skrifstofu SVFR að Suðurlandsbraut 54. Þetta er annað árið í röð sem við höldum slíkan viðburð og því má nú segja að hefð sé farin að myndast. Mætingin var frábær og stemningin ekki síðri. Gleði og léttleiki voru allsráðandi og eins og oft …

Lesa meira →

Frábær opnun á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal

30.04.2026 · SVFR

Vorveiðin á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal hófst um daginn og komu alls 25 urriðar á land, og var sá stærsti 67 cm. Mikið vatn var í ánni og því ekki hægt að veiða alla veiðistaði en þeir staðir sem voru inni voru heldur betur að gefa. Fiskurinn kemur vel undan vetri, er flottur í …

Lesa meira →

SVFR og Veiðiskólinn kynna flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára

29.04.2026 · SVFR

Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiskólinn kynna með stolti flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára ungmenni helgina 9.-10. maí við Rauðavatn. Skráning hófst í síðustu viku og hefur farið vel af stað en þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 30 skráningar borist. Ætlunin var að bjóða upp á námskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna en í ljósi þess …

Lesa meira →

Sumarhátíð við Elliðavatn á sumardaginn fyrsta

22.04.2026 · SVFR

Veiðikortið, SVFR, Skógræktarfélag Reykjavíkur og Veiðifélag Elliðavatns standa fyrir sumarhátíð veiðimanna. Dagskráin verður í höndum fræðslunefndar SVFR auk Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem margt skemmtilegt og fræðandi verður í boði fyrir börn og fullorðna. Aðilar frá SVFR verða veiðimönnum innan handar og veita góð ráð milli 11-13. Hvetjum alla til að taka með sér veiðistangir. Þeir …

Lesa meira →

Veiðimolar í byrjun sumars

22.04.2026 · SVFR

Góðan daginn. Nú er sumarið að bresta á og veiðimenn líta björtum augum á komandi tíma. Vorveiðin er komin á ágætis ról sums staðar, vötnin fara að taka við sér og vonandi fáum við gott veiðisumar. Hjá SVFR er til fjölbreytt úrval af veiðileyfum fyrir sumarið, bæði í silungsveiði og laxveiði. Það styttist í opnun …

Lesa meira →

Flugukastnámskeið SVFR

21.04.2026 · SVFR

Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður upp á kastnámskeið í samvinnu við Jóhann Sigurð Þorbjörnsson. Jóhann, eða Jóa í Veiðiflugum, þarf vart að kynna fyrir íslenskum veiðimönnum og konum. Hann hefur kennt og leiðbeint í fluguköstum um árabil og býr yfir mikilli reynslu í kennslu fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Kastnámskeiðin eru frábært tækifæri fyrir þá sem …

Lesa meira →

Þétt setinn fundur um framtíð Elliðaánna

17.04.2026 · SVFR

Mikil þátttaka var á opnum fundi um framtíð Elliðaánna sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur boðaði til á kaffihúsinu Elliða í Elliðaárdal. Fundurinn var haldin fyrir fullum sal gesta auk þess sem fjöldi áhugasamra fylgdust með á streymi. Hægt er að horfa á upptöku frá fundinum á heimasíðu og You Tube-rás SVFR. Fundurinn var haldinn í ljósi aukinnar …

Lesa meira →

Framtíð Elliðaánna – Opinn fundur með frambjóðendum

16.04.2026 · SVFR

Fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00 efnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur til opins fundar um málefni Elliðaánna og býður öllum framboðum sem taka þátt í komandi borgarstjórnarkosningum að koma og gera grein fyrir afstöðu sinni. Elliðaárnar eru einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborginni. Þær eru dýrmætt útivistarsvæði, mikilvægt búsvæði fisks og annars lífríkis og hluti af náttúruarfi Reykjavíkur. Á …

Lesa meira →

Heiðurskaffi heldri félaga – miðvikudaginn 15. apríl

10.04.2026 · SVFR

Það er okkur sönn ánægja að bjóða öllum heldri félögum, fæddum árið 1959 og fyrr, til heiðurskaffi miðvikudaginn 15. apríl n.k. Herlegheitin fara fram milli klukkan 14:00 og 16:00 á skrifstofu SVFR að Suðurlandsbraut 54 – 2. hæð (bláu húsin). Boðið verður upp á vöfflur og kaffi og þá mun formaðurinn, Ragnheiður Thorsteinsson, heilsa upp á …

Lesa meira →

Líf og fjör á seinasta opna húsi Kvennanefndar SVFR

08.04.2026 · SVFR

Þann 19. mars sl. var haldið fjórða og síðasta opna hús Kvennanefndar SVFR. Þar fóru Caddisbræðurnir Hrafn og Óli yfir það sem þarf að hafa í huga við veiði á urriða í straumvatni og sýndar myndir og myndbönd frá paradísinni Laxárdal. Um 20 konur mættu og kostir og gallar ólíkra veiðiaðferða voru rökræddir.

Lesa meira →
Engar fleiri færslur.
44 af 44 færslum