Veiðin.is

Hörðudalsá – Öll áin

Takmarkað næstu daga

Upplýsingar

Um svæðið

Veiðisvæði: Veiðisvæðið er öll Hörðudalsá fyrir utan Laugá og friðunarsvæðis efst í Vífilsdal innan við bæinn Vífilsdal. Ekki er leyfilegt að veiða í Fjórðungasíki sem rennur til Hörðudalsár við veiðistað númer 14 né heldur í Hundasíki og Köldukvísl sem koma í ánna við veiðistað 17. Tímabil: Veiðitímabil í Hörðudalsá er frá 06. júlí til 23. september. Veiðitíminn á tímabilinu 06. júlí til 15. ágúst er 07 – 13 og 16 – 22. Frá og með 15. ágúst er veiðitíminn 07 – 13 og 15 – 21. Á brottfarardegi er aðeins veitt til kl. 12:00 Veiðileyfi: Veiðileyfi eru seld tvo daga í senn, hálfur, heill, hálfur. Veitt er á 2 stangir. Stangirnar eru seldar saman. Heimilt er að það séu tveir saman um stöng og má þá að sjálgsögðu aðeins annar þeirra vera við veiðar í einu. Húsið: Húsið er með þrem svefnherbergjum sem hvert um sig hefur sér baðherbergi. Eitt herbergið er lokað á meðan það eru tvær stangir í ánni. Það eru 4 uppábúin rúm fyrir hvert veiðiholl. Með hverju rúmi eru 2 handklæði. Á brottfarardegi er byrjað að ræsta og þvo af rúmum kl. 10:00 svo vinsamlegast takið saman dótið ykkar í hebergjunum áður en farið er að veiða. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustund fyrir veiðitíma. Aðgerðarvaskur er utan á húsinu. Kæliskápur og klakavél eru í húsinu. Vinsamlega gangið vel um húsið og takið með ykkur allt rusl. Veiðimenn eru beðnir að virða eignir veiðfélagsins og ganga ekki um palla eða inn í húsið á gaddaskóm. Ryksugan í húsinu er ekki ætluð veiðimönnum til að ryksuga bíla. Það er stranglega bannað að hlaða rafmagnsbíla úr veiðihúsinu. Það er stranglega bannað að aka túnum bænda. Annað: Lausaganga hunda er bönnuð í Hörðudal. Það er bannað að hafa hunda í húsinu og við ánna. Það er bannað að vera með dróna við og yfir ánni og einnig er bannað að vera að mynda undir yfirborði árinnar. Óheimilt er að nota fjórhjól við akstur með ánni. Loka skal hliðum sem farið er um ef komið er að þeim lokuðum og þau eru í því ástandi að hægt sé að loka þeim. Allan veiddan fisk skal skrá á rétta veiðistaði í veiðibók, taka hreistursýni sem sett eru í þar til gerð umslög og merkið samviskusamlega.

Veiðireglur

Leyfilegt agn og hámarksveiði: Aðeins er leyft að veiða með flugu og maðki. Sökum niðursveiflu á bleikjustofninum er kvóti 4 bleikjur á dagstöng. Kvótinn á laxa er 3 laxar á dagsstöng. Þegar kvóta er náð ber að leggja maðkastönginni og veiða áfram á flugu og sleppa veiddum fiskum. Veiðimenn eru hvattir til að fara að veiða meira á flugu og hvíla maðkveiðina. Það er verið að rækta upp laxastofninn í ánni svo við biðlum til veiðimanna að sleppa 2ja ára hrygnum eða setja þær í búr gegn greiðslu upp í veiðleyfi síðar í samráði við umsjónamann sem er Níels S. Olgeis. Sími 894 2194. Brot gegn reglum: Það er heimilt að vísa þeim úr ánni fyrirvaralaust sem ekki hlíta settum reglum. Þeir sem virða ekki settar reglur og valda skemmdum verða útilokaðir frá frekari veiði í Hörðudalsá.

Myndir