• Auglýsingar
Sunnudagur | 3. júlí 2022
Fréttatíminn.is
442.is
Atvinnuleit.is
Veiðin.is
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði
No Result
View All Result
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði
No Result
View All Result
Veiðin.is
No Result
View All Result
AUGLÝSING
Forsíða Stangveiði

Börn og furðufiskar á Flensborgarhöfn – Hátt í 400 börn og ungmenni tóku þátt

Hátt í 400 börn og ungmenni tóku þátt í ár

Veiðin.is Skrifað af: Veiðin.is
22. júní, 2022
in Stangveiði, Veiði
0 0
0
Börn og furðufiskar á Flensborgarhöfn – Hátt í 400 börn og ungmenni tóku þátt

Þessi veiddu flesta fiska, stærsta fiskinn og furðufiskinn 2022 á Flensborgarhöfn

Share on FacebookShare on Twitter

Dorgveiðikeppni sumarnámskeiða Hafnarfjarðarbæjar við Flensborgarhöfn hefur með árunum orðið að keppni sem enginn á aldrinum 6-12 ára vill missa af. Hátt í 400 börn og ungmenni tóku þátt í dorgveiðikeppninni í ár og er óhætt að segja að spennustigið hafi verið hátt, eftirvæntingin mikil og tilburðir bæði líflegir og skemmtilegir. Verðlaun voru veitt fyrir flestu fiskana, stærsta fiskinn og furðufiskinn 2022. Meðal þeirra fögru fiska sem veiddir voru í ár voru koli, ufsi, þorskur og marhnútur. Meiri afli skilaði sér á land í ár en síðustu ár en núna í fyrsta skipti var smokkfiskur í boði sem beita og virtist það skila árangri.

Ein fjölmennasta dorgveiðikeppni landsins

Hafnarfjarðarbær hefur staðið fyrir dorgveiðikeppni á Flensborgarhöfn frá 1990 og er svo komið að keppnin er orðin ein fjölmennasta dorgveiðikeppni landsins og mörg hundruð börn og ungmenni bíða spennt eftir því ár hvert að munda færin og spreyta sig við að veiðarnar í fallegu umhverfi Flensborgarhafnar. Þátttakendur eru bæði á vegum sumarnámskeiða bæjarins og svo fer vaxandi sá hópur sem mætir til leiks með foreldrum sínum og forráðamönnum enda dorgveiði vinsæl í Hafnarfirði. Starfsfólk bæjarins voru með öfluga gæslu á höfninni meðan á keppninni stóð auk þess sem Siglingaklúbburinn Þytur sá um gæslu frá sjó.

Þessi veiddu flesta fiska, stærsta fiskinn og furðufiskinn 2022

Hefð hefur skapast fyrir því að verðlauna unga veiðimenn fyrir afla og árangur í þremur flokkum Í ár voru verðlaunin bikar og veiðistöng til að ýta undir áframhaldandi veiðar og áhuga. Hinn 11 ára gamli Ómar Hugi Hjálmarsson, hlaut verðlaun fyrir stærsta fiskinn, kola sem vigtaði 359 gr. Emil Snær Ágústsson hlaut verðlaun fyrir furðufisk ársins sem reyndist vera litfagur marhnútur og Þorri Strand Barkarson fyrir að veiða flesta fiska í keppninni í ár. Hann dró á land fjóra fiska og skammt á eftir honum var Karitas Ósk Jónasardóttir með þrjá fiska.

Hátt í 400 glaðbeitt börn tóku þátt í Dorgveiðikeppni Hafnarfjarðar í dag

 

 

 

Veiðin.is

Veiðin.is

Next Post
Laxá í Aðaldal byrjar vel – Boltafiskar og allir glaðir

Laxá í Aðaldal byrjar vel - Boltafiskar og allir glaðir

Vinsælt

  • Stærsta frétt vikunnar og veiðitölur í ám

    Stærsta frétt vikunnar og veiðitölur í ám

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 95 cm. lax í Aðaldal

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viðvarandi fuglaflensusmit í villtum fuglum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 10 laxar komnir um hádegið

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Gott veiðiveður framundan

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Veiðin.is © 2019 - 2021

No Result
View All Result
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði

Veiðin.is © 2019 - 2021

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In