Íslenska fluguveiðisýningin, sjálfseignarstofnun, mun standa fyrir viðburði sem streymt verður beint á netinu fimmtudaginn 25. mars næstkomandi kl. 20:00. Viðburðurinn verður í samstarfi við Hylinn hlaðvarp sem mun bæði sjá um tæknilegu hliðina og leiða viðburðinn ásamt Eggerti Skúlasyni. Föstudaginn 26. mars verður síðan beint streymi frá IF4 kvikmyndahátíðinni.
Um Íslensku Fluguveiðisýninguna
Þetta verður þriðji viðburður Íslensku fluguveiðisýningarinnar en áður hafa verið haldnar sýningar í Háskólabíói árin 2018 og 2019. Sýningin féll niður árið 2020 vegna Covid-19. Íslenska fluguveiðisýningin, kt. 571218-1270, er sjálfseignarstofnun og er öllum fjármunum sem safnast á sýningunni að frádregnum kostnaði, varið í þágu meginmarkmiðs sýningarinnar sem er að standa vörð um íslenska náttúru og dýralíf með áherslu á vernd og uppbyggingu villtra ferskvatnsstofna, þá einkum lax og bleikju.
Árið 2019 tókst að safna 900.000 kr. á sýningunni og hefur stjórn sýningarinnar nú þegar veitt Icelandic Wildlife Fund, Laxfiskum ehf. og NASF á Íslandi 200.000 kr. styrk, hverjum aðila.
Önnur markmið Íslensku fluguveiðisýningarinnar eru:
– Að stuðla að vandaðri umræðu og fræðslu um verndun villtra ferskvatnsstofna hér á landi.
– Að efla samfélag fluguveiðimanna á Íslandi og skapa vettvang þar sem allir sem tilheyra samfélaginu, þ.e. veiðimenn, verslunarmenn, veiðileyfasalar, leiðsögumenn og fleiri, geta hist og skipst á hugmyndum og skoðunum.
Úthlutun og stjórn
Íslenska fluguveiðisýningin mun ávallt verja öllum fjármunum sem safnast á sýningunni í að standa vörð um íslenska náttúru og dýralíf með áherslu á vernd og uppbyggingu villtra ferskvatnsstofna. 50-80% af fjármunum sem safnast ár hvert mun renna til annarra samtaka sem sérhæfa sig í þessari baráttu en afganginum mun Íslenska fluguveiðisýningin ráðstafa sjálf til að ná fram sömu markmiðum.
Íslenska fluguveiðisýningin er sjálfseignarstofnun með þriggja manna stjórn. Núverandi stjórn skipa Árni Freyr Árnason, hdl. og veiðimaður, Kristján Páll Rafnsson, framkvæmdastjóri Fish Partner og veiðimaður, og Sigurður Árnason, barnalæknir og veiðimaður. Á skipunartíma fyrstu stjórnar (fjögur ár) mun stjórn fela þremur hagsmunaaðilum sem tengjast markmiðum sýningarinnar, t.d. Landsambandi veiðifélaga, skipunarvald stjórnarmanna til framtíðar.
Stjórnin hefur skipað Gunnar Örn Petersen, lögfræðing og veiðimann, sem framkvæmdastjóra sýningarinnar til eins árs í senn. Hvorki framkvæmdastjóri né stjórnarmenn þiggja laun fyrir störf sín. Bókhald sýningarinnar er ávallt opið og mun framkvæmdastjóri veita upplýsingar um það.
Viðburður á netinu – dagskrá
25. mars, fimmtudagur
20:00 Streymi hefst – rætt verður við valinkunna veiðimenn og leigutaka um stöðuna í veiðinni í kjölfar Covid. Eggert Skúlason og Sigþór Steinn Ólafsson leiða umræðurnar.
21:30 Uppboð á veiðileyfum og veiðivörum. Gunnar Helgason stýrir uppboðinu.
26. mars, föstudagur
20:30 IF4 kvikmyndahátíðin.
Aðgangur og þátttaka bakhjarla
Aðgangur að viðburði á netinu Ekkert gjald
Aðgangur að IF4 streymi á netinu ásamt happdrættismiða 1.500 kr.
Nefgang: info@iffs.is
Facebook: Íslenska fluguveiðisýningin á Facebook
Instagram: Íslenska fluguveiðisýningin á Instagram
