Á morgun fer fram hin sívinsæla dorgveiðikeppni á Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Keppnin hefst kl. 13:30 og lýkur með verðlaunaafhendingu um kl. 15 þar sem veitt verða verðlaun fyrir flestu fiskana, stærsta fiskinn og furðufisk ársins 2022.
Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára og eru þátttakendur bæði á vegum sumarnámskeiða bæjarins og svo fer vaxandi sá hópur sem mætir til leiks með foreldrum sínum og forráðamönnum enda dorgveiði vinsæl í Hafnarfirði.
Dorgveiðikeppnin hefur með árunum orðið að keppni sem enginn á aldrinum 6-12 ára vill missa af. Hátt í 500 börn hafa tekið þátt hin síðustu ár og er óhætt að segja að spennustigið sé hátt, eftirvæntingin mikil og tilburðir bæði líflegir og skemmtilegir. Hafnarfjarðarbær hefur staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni á Flensborgarhöfn frá 1990 og er svo komið að keppnin er orðin ein fjölmennasta dorgveiðikeppni landsins.