• Auglýsingar
Mánudagur | 8. mars 2021
Fréttatíminn.is
442.is
Atvinnuleit.is
Veiðin.is
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði
No Result
View All Result
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði
No Result
View All Result
Veiðin.is
No Result
View All Result
AUGLÝSING
Forsíða Stangveiði

Aðalfundur SVFR 2021 – Fyrirkomulag kosninga

Gunnar Bender Skrifað af: Gunnar Bender
17. febrúar, 2021
in Stangveiði, Veiði
0 0
0
Aðalfundur SVFR 2021 – Framboð til stjórnar

Aðalfundur 2021 - Framboð til stjórnar

Share on FacebookShare on Twitter

Fyrirkomulag kosninga í aðdraganda aðalfundar verður með óvenjulegu sniði þetta árið. Fyrirkomulagið er í takt við það óhefðbunda ástand sem ríkt hefur í þjóðfélaginu öllu, en eins og allir vita er nú í gildi reglugerð stjórnvalda sem m.a. takmarkar eða bannar fjöldasamkomur og -fundi. Hömlurnar eru settar til að takmarka útbreiðslu COVID-19, í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis. Þá er aukinheldur ljóst að ýmsir félagsmenn SVFR kjósa að halda sig fjarri mannamótum vegna faraldursins, en vildu samt sem áður eiga kost á því að nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundi SVFR eða í aðdraganda hans.

Af augljósum ástæðum eru uppi ákveðin neyðarréttarsjónarmið (force majure) sem hafa gert það að verkum að félög og fyrirtæki hafa neyðst til þess að taka upp nýtt fyrirkomulag á sínum aðalfundum og jafnvel hafa þá rafræna með öllu. Í 6. gr. laga SVFR er m.a. getið um það, að stjórn félagsins geti gefið út nánari reglur um kjörgögn og fyrirkomulag kosninga og skuli kynna það á heimasíðu félagsins tíu dögum fyrir aðalfund.

Á aðalfundi SVFR árið 2020 var samþykkt að breyta lögum félagsins og gera rafrænar kosningar til stjórnar heimilar. Stjórn SVFR hefur ákveðið að nýta þetta nýja ákvæði og bjóða félagsmönnum að kjósa fólk til trúnaðarstarfa í rafrænni kosningu í aðdraganda aðalfundarins. Stjórn SVFR áréttar, að fyrirkomulagið sé ekki einvörðungu sótt til þeirrar lagabreytingar sem vísað er til, heldur sé ákvörðun ennfremur tekin á grundvelli framangreindrar 6. gr. laga félagsins sem og jafnframt á neyðarréttarsjónarmiðum sem rekja megi til hins fordæmalausa ástands sem uppi hefur verið í íslensku samfélagi og áður er rakið. Með þessum hætti er hins vegar unnt að tryggja að sem flestir félagsmenn geti neytt atkvæðisréttar síns á þessum sérkennilegu tímum.

Rafræn kosning til stjórnar kemur í stað hefðbundinnar utankjörfundaratkvæðagreiðslu og hefst hún mánudaginn 22. febrúar og lýkur miðvikudaginn 24. febrúar kl. 16. Kosið verður til stjórnar og fulltrúaráðs á aðalfundinum. Nánari upplýsingar um framkvæmd og leiðbeiningar verða sendar til félagsmanna síðar í vikunni. Þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöldin 2021 fyrir miðnætti sunnudaginn 21. febrúar nk. geta tekið þátt í utankjörfundaratkvæðagreiðslunni.

Þá eru félagsmenn eru hvattir til að skrá sig á fundinn svo áætla megi fjölda fundargesta fyrirfram og tryggja að framkvæmd fundarins verði í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur. Skráningarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 21. febrúar nk.

Athugið!

Frestur til að greiða félagsgjöld og öðlast kjörgengi ásamt skráningu á aðalfund 2021 er til miðnættis sunnud. 21. febrúar nk.

Skráðu þig hér á aðalfundinn

Sjá fyrri frétt um hverjir eru í framboði Framboð 2021

Gunnar Bender

Gunnar Bender

Gunnar Bender er þjóðþekktur fréttaritari um veiðar á Íslandi og hefur skrifað um stangveiði og skotveiði um allt land í fjóra áratugi. Í dagblöð, tímarit og bækur og þá hefur hann einnig á seinni árum verið ötull framleiðandi sjónvarpsþátta um veiðar.

Next Post
Fróðleg kynning um Laxa í Aðaldal

Fróðleg kynning um Laxa í Aðaldal

AUGLÝSING

Vinsælt

  • Hreggnasi fær ekki Ytri Rangá

    Hreggnasi fær ekki Ytri Rangá

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Góð helgi að baki

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Flottir fiskar fengust í dorgveiði á Mývatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Nýr söluvefur fyrir veiðileyfi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Einn besti leikari landsins í ,,Allra síðustu veiðiferðinni“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Veiðin.is © 2019 - 2021

No Result
View All Result
  • Forsíða
  • Skotveiði
  • Stangveiði
  • Myndbönd
  • Kynning á veiðisvæði

Veiðin.is © 2019 - 2021

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

All fields are required. Log In

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In